Fara á efnissvæði
15. apríl 2026

Sigurþór og Guðbjartur sæmdir Gullmerki UMFÍ

Þeir Sigurþór Hjörleifsson og Guðbjartur Gunnarsson voru sæmdir Gullmerki UMFÍ á héraðsþingi Héraðssambandi Snæfellsness og Hnappadalssýslu (HSH) í vikunni. 

Gullmerki ÍSÍ hlaut María Alma Valdimarsdóttir. 

Á þinginu voru á sama tíma sæmd Gullmerki HSH þau Baldur Þorleifsson, Gunnlaugur Smárason, Gísli Guðmundsson, Jóhannes Erlingsson, María Alma Valdimarsdóttir, Vignir Sveinsson og Þorsteinn Björgvinsson.

Þingið var þokkalega vel sótt. Fulltrúar 29 aðildarfélaga sátu það og voru þinggestir í heildina 40 talsins, sem skráðu nafn sitt í gestabók staðarins.

Hjörleifur K. Hjörleifsson, formaður stjórnar HSH, var sjálfkjörinn. Hvorki urðu breytingar á stjórn né varastjórn sambandsins. 

Það er skemmtileg tilviljun að Hjörleifur er nátengdur þeim sem sæmdir voru Gullmerki UMFÍ. Sigurþór er elsti bróðir Hjörleifs og Guðbjartur er frændi þeirra. Báðir hafa þeir æft og keppt lengi, unnið lengi fyrir íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna og setið í stjórnum félaga og sérsambanda. 

Fáar tillögur lágu fyrir þinginu og gekk það ljómandi vel, að sögn Hjörleifs.