Fara á efnissvæði
26. júlí 2026

Síðasti dagur til að skrá í greinar

Þá er runninn upp síðasti dagur til að skrá sig á Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer á Sauðárkróki um næstu helgi. 

Í dag er því lokafrestur til að klára skráningu í greinar og lið á mótinu. Nú er líka kjörið tækifæri til að bæta við greinum og láta verða af því að prófa grein sem þig hefur dreymt um. 

Minnið líka vinkonu og vini til að skrá sig í lið. Þau sem ekki eru í liði verða sett í stórskemmtileg lið í sínum aldursflokkum. 

Allt er að smella saman fyrir mótið og gera klárt. Hópur sjálfboðaliða ásamt fulltrúum björgunarsveitarinnar setti upp tvö stór tjöld í gærmorgun á grasflötinni á milli íþróttahússins og gervigrasvallarins. Þetta eru veitingatjald og stóra partítjaldið, sem hefur í gegnum tíðina verið í miklu uppáhaldi hjá mótsgestum. Þar mun fara fram fjölbreytt skemmtun og allir tónleikarnir á mótinu.

Skráning á Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina er í fullum gangi og getur fólk skráð sig og sína til þátttöku fram á miðnætti á sunnudag 26. júlí.

 

Svona skráir þú þig

Við höfum fengið nokkrar fyrirspurnir um það hvernig eigi nú að skrá í greinar á mótinu.

Það er gert svona:

  • Hér skráirðu þátttakanda á mótið og kaupir aðgang að tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna: Smella hér
  • Þegar þú ert búin/n að skrá þátttakanda á mótið í Abler, þá ættirðu að fá tölvupóst með hlekk á. Hlekkurinn vísar á skráningu í greinar. Ef þú hefur ekki fengið hlekkinn eða vilt fara beint á skráningarsíðuna í gegnum appið þá þarftu að fara þessa leið:   
  • Opnaðu Abler–appið.
  • Farðu inn á prófílinn þinn.
  • Smelltu á hnappinn: „Verslanir og markaðstorg“.
  • Veldu „Markaðstorg“.
  • Veldu „Ungmennafélag Íslands“.
  • Ýttu á upphafsstafi/prófílmynd þína (efst í hægra horninu).
  • Farðu í „Skráningar“.
  • Finndu Unglingalandsmótið og ýttu á „Sjá meira“.
  • Veldu „Smelltu hér til að skrá þig í greinar“.

Nú ættir þú að geta skráð þig og þína í greinar og/eða skoðað þær sem þú eða þátttakandinn er þegar skráð/ur í.

Ef eitthvað er óljóst eða bras á einhverju, það bara virkar ekki eins og það á að gera, þá mælum við með að þú smellir í tölvupóst á netfangið umfi@umfi.is.

Ertu búin/n að kynna þér hvaða greinar eru í boði? Margir þátttakendur skrá sig í fleiri en eina grein.

Allar upplýsingar um mótið