Setjum leikgleðina í fyrsta sætið
Mikilvægt er að tala opinskátt um spilavanda og minna á að hjálp er til staðar fyrir þau sem missa fótanna. ÍSÍ og UMFÍ leggja mikla áherslu á málefnið og vinna markvisst að því að vekja athygli á þeim vanda. Slíkur vandi getur haft víðtæk áhrif, bæði á einstaklinga, fjölskyldur þeirra og aðra sem standa þeim nærri.
Margir stórir íþróttaviðburðir eru á dagskrá í sumar og er gott að hafa í huga hættuna sem getur fylgt íþróttaveðmálum.
ÍSÍ og UMFÍ hafa gert fræðsluvídeó um spilavanda þar sem farið er skýrt yfir einkenni, áhrif og þau úrræði sem fólki stendur til boða. Þar er lögð rík áhersla á að auka skilning og hvetja fólk til að bregðast við áður en skemmtun er orðin að vanda.
Hér er vídeóið: https://www.siu.is/fraedslumyndbond
KSÍ og SÁÁ hafa jafnframt tekið saman vandað efni um þetta mikilvæga mál. Það styður við þessa umræðu og er þar að finna upplýsingar og stuðning.
Við hvetjum fólk til að kynna sér efni KSÍ og deila því líka áfram:
https://www.ksi.is/um-ksi/ymsar-upplysingar/samfelagsleg-verkefni/spilavandi-thad-er-til-hjalp/