Risaskref í íþróttasögu landsins
Stór skref voru stigin í íþróttamálum landsins í gær þegar skóflustunga var tekin að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal. Þjóðarhöllin verður um 17.700 fermetrar. Á kappleikjum verða 8.600 sæti en á tónleikum og öðrum viðburðum rúmar hún allt að 12.000 gesti.
Hún tengist Laugardalshöll og Frjálsíþróttahöllinni og verður hönnuð með aðgengi fyrir alla í huga. Þar verður einnig veitingarekstur fyrir gesti.
Íþróttafélögin Þróttur og Ármann fá þar aðstöðu og sérsamböndin fá aðstöðu til æfinga og keppni fyrir landsliðshópa sína. Nærliggjandi skólar og háskólar nýta höllina til íþróttakennslu. Þá verður hún opin almenningi og vettvangur lýðheilsuverkefna.
Umræða um höllina hefur staðið í rúm þrjátíu ár og íþróttahreyfingin hefur því beðið þessa dags lengi. Ungt afreksíþróttafólk úr handbolta, körfubolta, blaki, fimleikum og glímu, auk ungmennis úr Þrótti, tók skóflustunguna í snjókomunni sunnan við Laugardalshöll.
Heimavöllur landsliða og miklu meira
Laugardalshöll hefur þjónað íslensku íþróttafólki frá árinu 1965. Hún uppfyllir þó ekki lengur alþjóðlegar kröfur og landsliðin hafa leikið þar á undanþágu. Ný Þjóðarhöll verður heimavöllur landsliða í innanhússíþróttum en á að nýtast mun breiðari hópi.
„Hér mun fara fram mikið starf fyrir börn og ungmenni í Laugardalnum. Hér fer líka fram starf fyrir afreksíþróttafólk og hér verður menningarlíf og viðburðahald,“ sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.
„Nú getum við boðið heim. Þetta er algerlega ómetanlegt,“ sagði Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.
Tilbúin fyrir HM 2031
Stefnt er að verklokum í janúar 2030. Ný höll er forsenda þess að Ísland geti haldið HM karla í handknattleik 2031 ásamt Danmörku og Noregi.
Áætlaður kostnaður er um 16,8 milljarðar króna. Ríkið greiðir 55% og Reykjavíkurborg 45%. Íslenskir aðalverktakar annast hönnun og byggingu.
„Í íþróttum lærum við þrautseigju og þolinmæði. Af henni eigum við nóg og nú erum við loksins komin á þennan áfangastað,“ sagði Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.
Á afstöðumyndinni hér að neðan má sjá hvernig Þjóðarhöllin mun líta út þegar hún verður risin í Laugardalnum, sunnan við Laugardalshöll og Frjálsíþróttahöll. Á myndinni, sem er fengin af vefsvæðinu www.thjodarholl.is, sjást útlínur hallarinnar og hvernig hún tengist núverandi mannvirkjum, ásamt aðkomu, hjólastæðum og göngu- og hjólaleiðum. Þar sést einnig tengingin við Borgarlínu á Suðurlandsbraut.