Fara á efnissvæði
17. apríl 2026

Rætt um framtíðarsýn íþróttahreyfingarinnar

Um þrjátíu fulltrúar sérsambanda og íþróttafélaga á höfuðborgarsvæðinu tóku virkan þátt á stefnumótunarfundi ÍSÍ og UMFÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær. Tveir fundir eru á höfuðborgarsvæðinu og verður sá næst þriðjudaginn 21. apríl, það er á þriðjudag í næstu viku.

Stefnumótunarfundir hafa verið haldnir víða um land undanfarnar vikur þar sem fulltrúar íþróttahéraða, íþróttafélaga og annarra hagaðila hafa hist upp á síðkastið til að ræða stöðu og framtíðarsýn íþróttastarfsins. Markmið fundanna er að skilgreina helstu áherslur í grasrótarstarfi, afreksstarfi og samfélagsverkefnum og leita eftir því að móta sameiginlega stefnu fyrir íþróttahreyfinguna. Á fundunum eins og í gær hefur verið lögð áhersla á að sameina ólíkar áherslur í eina skýra stefnu og framtíðarsýn hreyfingarinnar. 

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, ráðgjafi hjá Expectus, stýrði fundinum ásamt forsvarsfólki ÍSÍ og UMFÍ. 

Framtíðarsýnin sem lögð var fram byggir á því að íþróttastarf sé hornsteinn samfélagsins, það verði aðgengilegt öllum óháð búsetu, efnahag eða félagslegum aðstæðum. Ungmenni eigi að hafa tækifæri til þátttöku í skipulögðu starfi og sjálfbærni verði leiðarljós í samstarfi við stjórnvöld og samfélagið. Auk þess var rætt um sjálfboðaliða og íþróttastarfið ásamt ýmsu fleiru.

Næsti fundur í stefnumótun íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal þriðjudaginn 21. apríl klukkan 16:00. 

Það verður síðasti fundurinn í þessum fasa stefnumótunarinnar.

 

Hér er hægt að skrá sig á fundinn

 

Hér má sjá nokkrar myndir frá fundinum. 

Fleiri myndir eru á Facebook-síðu UMFÍ.