Fara á efnissvæði
16. apríl 2026

Ræddu um aðgerðir gegn brottfalli úr íþróttum

Tæplega fimmtíu þátttakendur mættu á viðburðinn Raddir ungs fólks – samtal við ráðafólk, sem fram fór í íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær. Samtalið er viðburður sem haldinn hefur verið um allt land, hófst á Austurlandi í byrjun mars og hefur farið á hverja svæðisstöð íþróttahéraðanna á fætur annarri. Fundarröðinni lýkur á Suðurlandi og Suðurnesjum í maí. 

Fundurinn í gær var ætlaður þátttakendum á höfuðborgarsvæðinu. Á fundinn mættu fulltrúar sérsambanda, íþróttafélaga og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu auk ungra iðkenda á aldrinum 15–25 ára sem bæði hafa áhuga á íþróttum, hafa æft íþróttir, eru enn að æfa eða hafa af einhverjum ástæðum hætt því. 

Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í handknattleik, heimspekingur og meistaranemi í íþróttasálfræði, hóf fundinn með áhugaverðu erindi um íþróttir og iðkendur og afreksfólk en ræddi sömuleiðis um íþróttir frá eigin sjónarhóli. Eftir það tóku við viðræður um aðgerðir sem mögulega geta spornað gegn brottfalli barna og ungmenna úr skipulögðu íþróttastarfi og hvað megi fara betur í starfinu til að halda þátttakendum í því. 

Fundurinn er hluti af landsverkefni ÍSÍ, UMFÍ, svæðisstöðva íþróttahéraða og Ungmennaráðs UMFÍ með stuðning frá Erasmus+, menntaáætlun Evrópusambandsins, og miðar að því að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks en sporna líka gegn brottfalli úr skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Niðurstöður fundanna verða meðal annars nýttar í heildstæðri stefnumótun íþróttahreyfingarinnar sem nú stendur yfir.

 

Hér má sjá nokkrar myndir frá viðburðinum.