Námskeið og vinnustofa um íþróttir fatlaðra
Laugardaginn 7. nóvember munu Háskólinn í Reykjavík, Íþróttasamband fatlaðra og Allir með verkefnið standa saman að námskeiði og vinnustofuna: „Allir með: Hvað getum við hin gert?“ Viðburðurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík og verður frá kl. 09.30-16:00 þann daginn.
Boðið verður upp á veitingar á viðburðinum.
Skráning er hafin.
Hægt er að smella hér og skrá þátttöku
Skráningarfrestur er til hádegis föstudagsins 6. nóvember.
Íþróttaþátttaka getur skipt sköpum fyrir einstaklinga með fatlanir. Hún styrkir félagsleg tengsl, eykur sjálfstæði í daglegu lífi, bætir líkamlega heilsu og byggir upp færni sem nýtist langt út fyrir æfingasalinn. En hvernig búum við til æfingaumhverfi þar sem þetta gerist í raun? Við bjóðum foreldrum, þjálfurum og stjórnarfólki í íþróttafélögum, því þetta er á okkur öllum að vinna að þessum málum og gott er að við séum öll að stefna í sömu átt.
Hvað verður fjallað um?
- Af hverju íþróttir? Hvað rannsóknir segja um félagsleg tengsl og andlega heilsu, sjálfstæði, líkamlega heilsu, sjálfræði, valdeflingu og atvinnuþátttöku.
- Algild hönnun náms (UDL): Einföld nálgun sem miðar þjálfun við einstaklinginn – og gagnast öllum iðkendum.
- Æfingaumhverfi: Útilokun, aðgreining, samþætting og inngilding – kostir og gallar ólíkra leiða fyrir iðkandann og félagið.
Fyrirkomulag dagsins
- Stuttar kynningar um hvernig fræðin segja að best sé að standa að málum í afmörkuðum þáttum.
- Umræður í hópum þar sem foreldrar, þjálfarar og stjórnarfólk deila reynslu og læra hvert af öðru.
- Hóparnir kynna stutt sínar umræður, hver hópur kynnir fyrir hinum hópunum hvað þeim finnst.
- Næsti þáttur tekinn fyrir þangað til allir þættir eru kláraðir.
Niðurstöðurnar fara áfram
Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) tekur þátt í deginum og mun taka niðurstöður og tillögur hópanna áfram. Þín rödd getur því haft raunveruleg áhrif á íþróttastarf fyrir einstaklinga með fatlanir á Íslandi.