Næsti fundur um stefnumótun íþróttahreyfingar
Næsti fasi í stefnumótunarvinnu íþróttahreyfingarinnar er að hefjast.
Þriðjudaginn 1. september næstkomandi klukkan 16:00 – 19:00 er netfundur með fulltrúum íþróttahéraða og sérsambanda. Fulltrúum íþróttafélaga er einnig velkomið að taka þátt.
Fundurinn nú er framhald á þeim stefnumótunarfundum sem haldnir voru víða um land í nánu samstarfi við íþróttahreyfinguna á vordögum um þau þrjú meginsvið sem unnið hefur verið með til þessa: Grasrótarstarf, afreksstarf og samfélagslegt hlutverk íþróttahreyfingarinnar með áherslu á forvarnir og lýðheilsu. Þar voru góðar umræður um leiðina fram undan og áherslur til framtíðar.
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, ráðgjafi hjá Expectus, mun sem fyrr stýra fundinum.
Mikilvægt er að skrá þátttöku á fundinum.
Smelltu hér og skráðu þig á fundinn
Næstu skref
Tillögur eftir stefnumótunarfundi ársins verða til umræðu á sambandsráðsfundi UMFÍ í október og á formannafundi ÍSÍ í nóvember.
Stefnumótunarvinnan er unnin á vegum stýrihóps sem starfar í umboði stjórna UMFÍ og ÍSÍ. Markmiðið er að niðurstöður hennar verði formlega kynntar á íþróttaþingi árið 2027.