Fara á efnissvæði
12. október 2026

Mikilvægt að íþróttahreyfingin móti sameiginlega framtíðarsýn

Fádæma góður fjöldi mætti á 46. Sambandsráðsfund UMFÍ sem fram fór á Ísafirði á laugardag. Fundurinn er haldinn á tveggja ára fresti á móti sambandsþingum UMFÍ.

Öll íþróttahéruð landsins áttu fulltrúa á fundinum en hann sátu sömuleiðis svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna, gestir og, stjórn og starfsfólk.

Skúli Bragi Geirdal, varaformaður UMFÍ, og Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, stýrðu hvor sinni vinnustofunni sem báðar tengdust sameiginlegri stefnumótum ÍSÍ og UMFÍ.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, var á meðal gesta fundarins. Hann flutti ávarp og ræddi um fjármögnun og áskoranir og lagði áherslu á mikilvægi þess að íþróttahreyfingin móti sameiginlega framtíðarsýn.

Willum vitnaði í mannréttindafrömuðinn Nelson Mandela sem sagði að íþróttir væru besta forvörnin. Verndandi þættir þeirra væru staðfestir frekar með rannsóknum. Þá yfirfærði hann niðurstöður skýrslu Golfsambandsins um áætlaðan samfélagslegan ávinning af íþróttinni. Miðað við þær niðurstöður næmi ávinningurinn um 200 milljörðum króna. Á sama tíma hafi framlag ríkisins til íþrótta dregist saman. Sameiginleg stefnumótun nýtist til að tala einum rómi við stjórnvöld um að líta beri á framlag hins opinbera til íþrótta sem fjárfestingu frekar en útgjöld.

 

Fleiri myndir frá fundinum