Fara á efnissvæði
17. ágúst 2026

Metþátttaka í Drulluhlaup

Drulluhlaup Krónunnar fór fram í fimmta sinn í kringum íþróttasvæðið við Varmá í Mosfellsbæ á laugardag. Metþátttaka var í hlaupinu og unnu rúmlega 1.200 þátttakendur saman að því að komast yfir 21 drulluskemmtilega hindrun á 3,5 kílómetra vegferð. Veðrið gerði vegferðina enn skemmtilegri því sól skein hátt á lofti og vart ský á himni. 

UMFÍ, Krónan og frjálsíþróttradeild Aftureldingar standa að þessu skítuga viðburði. Árangur og tími skipta þátttakendur engu máli enda er markmiðið að njóta þess að komast í gegnum brautina með fjölskyldu og vinum. 

Hleypt var út á brautina í hollum og fór það fyrsta út klukkan 9:30 í gærmorgun og hélt stuðið stanslaust áfram fram yfir hádegið. Jónsi í Svörtum fötum og DJ Bjarni héldu uppi stuði allan tímann. 

Froðuvél var á svæðinu og vakti hún heilmikla lukku. Krónan sá til þess að þátttakendur fengu ávexti og drykki og svo gátu þau sem vildu spreytt sig í lítilli Skólahreystibraut. Til að tryggja að ekki þurfi að fara með bíla þátttakenda í alþrif gátu þátttakendur skolað af sér mesta skítnum áður en þeir skelltu sér í sund og skiptu um föt.

Drulluhlaupið hefur í gegnum tíðina vakið mikla athygli. Upptökuteymi frá NDR í Þýskalandi fylgdi einum þátttakanda eftir allan hringinn en teymið er að fjalla um þjóðaratkvæðagreiðsluna hér á landi í lok mánaðar. Sömuleiðis tóku þátt í viðburðinum fulltrúar frá íþrótta- og menningarsambandinu Nemunas frá Litháen. Nemunas sinnir íþróttastarfi og viðburðum í dreifbýli í Litháen og er hópurinn staddur hér á landi til að kynna sér starf UMFÍ.

 

Fylgstu með UMFÍ!

Fleiri myndir úr hlaupinu má sjá hér að neðan og á myndasíðum UMFÍ. Það er upplagt að fylgja UMFÍ á samfélagsmiðlum og missa ekki af neinu sem þar fer fram.

Myndir á Flickr

UMFÍ á Instagram

UMFÍ á Facebook