Fara á efnissvæði
19. maí 2026

„Meira í gangi á bak við tjöldin en maður heldur“

„Mér fannst þetta mjög gaman og gefandi og sá fljótt að það er mun meira í gangi á bak við tjöldin en maður heldur,“ segir Karólína Ósk Arndal Sigurlaugardóttir, nemandi á öðru ári í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík. Hún var í vettvangsnámi í þjónustumiðstöð UMFÍ ásamt samnemanda sínum, Sóldísi Tinnu Eiríksdóttur.

Þær Sóldís og Karólína tóku þátt í ýmsum verkefnum, kortlögðu meðal annars umfang sjálfboðaliða á viðburðum sérsambanda í þeim tilgangi að draga upp mynd af fjölda þeirra á leikjum á einni helgi. Niðurstöður verkefnisins verða birtar fljótlega. Þær gerðu sömuleiðis allt klárt fyrir skráningar á Landsmót UMFÍ 50+, sem fram fer í Eyjafjarðarsveit og nágrenni síðustu helgina í júní, og Unglingalandsmót UMFÍ, sem verður á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina.

Þær Karólína og Sóldís hafa um árabil verið virkar innan íþróttahreyfingarinnar. Karólína spilar með meistaraflokki kvenna í liði Fjölnis í handbolta og þjálfar sömuleiðis hjá félaginu. Sóldís er knattspyrnukona, spilar með meistaraflokki FHL í Fjarðabyggð og þjálfar yngri flokka í knattspyrnu hjá Val í Reykjavík.

Á sama tíma og þær Sóldís og Karólína voru í verknámi hjá UMFÍ voru rúmlega 20 aðrir nemendur í íþróttafræðum í ýmsum verkefnum innan íþróttahreyfingarinnar í Laugardalnum í Reykjavík og sinntu þar fjölbreyttum verkefnum m.a. hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ), Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ) og Körfuknattleikssambandi Íslands (KKÍ).