Fara á efnissvæði
02. júní 2026

Lokadagur verkefnis UMFÍ og UEFA

Lokahátíð verkefnisins „Við erum öll fyrirliðar“ fór fram í íþróttahúsi Fram við Dalsskóla á föstudag í síðustu viku. Nemendur frá Dalsskóla, Ingunnarskóla og Sæmundarskóla í Reykjavík komu á hátíðina. Þar ræddu fulltrúar frá UMFÍ og KVAN við nemendurna, afhentu fulltrúum skólanna viðurkenningar og síðan brugðu sér allir á leik í íþróttahúsinu og luku hátíðinni með pylsuveislu. 

Verkefnið „Við erum öll fyrirliðar“ er þróunarverkefni UMFÍ í samstarfi við UEFA (Knattspyrnusamband Evrópu) sem fyrirtækið KVAN vinnur við í samstarfi við íþróttafélagið Fram.  Verkefnið fékk styrk frá UEFA Foundation for Children.)

Verkefnið byggir á þeirri hugmyndafræði að öll sem vilja geti tileinkað sér leiðtogahæfni og leiðtogahegðun og vinna gegn neikvæðri hegðun. Með verkefninu fylgja handbækur fyrir kennara, starfsfólk skóla og nemendur.

Ýmislegt hefur verið gert í tengslum við verkefnið og haldnir nokkrir viðburðir þar sem verkefninu er lyft upp. Þar er jafnframt fagnað framförum nemenda. 

Verkefnið sýnir fram á mikilvægi þess að markvisst starf með leiðtogahæfni, samskipti og sjálfstyrkingu getur haft jákvæð áhrif á skólabrag og líðan nemenda sem og kennara. 

Verkefninu „Við erum öll fyrirliðar“ var ýtt úr vör í íþróttahúsi Fram í Úlfarsárdal í janúar á þessu ári. Viðstödd opnunarhátíðina voru m.a. fulltrúar UEFA, þau Carine N´Koué, framkvæmdastjóri Styrktarsjóðs barna hjá UEFA (UEFA Foundation for Children) og Hakan Sjöstrand.

Fulltrúar Gleðistjörnunnar tóku jafnframt þátt í verkefninu og voru sýnilegir á opnunarhátíðinni í byrjun árs. Markmið Gleðistjörnunnar er að hjálpa öðrum að finna gleðina og trúa því að alltaf sé vonarglæta í því sem fólk tekur sér fyrir hendur. 

 

Hér að neðan má sjá fleiri myndir frá lokahátíðinni.