Fara á efnissvæði
20. ágúst 2026

Kraftur kvenna í íþróttum

Kraftur kvenna (e. Fuelling Females) er fræðsluverkefni sem hefur það að markmiði að efla konur í hreyfingu og íþróttum með því að miðla gagnreyndri og hagnýtri þekkingu um næringu, heilsu og lífeðlisfræði kvenna. Á fyrstu málstofu verkefnisins, sem Háskólinn í Reykjavík stóð að í gær í samstarfi við ÍSÍ og UMFÍ var fjallað um næringu íþróttakvenna og mikilvægi hennar fyrir heilsu, vellíðan og árangur.

Christofer Curtis, íþróttanæringarfræðingur og dósent við Háskólann í Reykjavík, kynnti verkefnið og fjallaði um nýjustu rannsóknir á sviði næringar íþróttakvenna fyrir pakkfullum sal áhorfenda, sem langflestar voru konur. 

Í erindinu fór Christofer yfir það hvernig þekking á næringarþörfum kvenna hefur þróast á undanförnum árum samhliða aukinni áherslu á rannsóknum, sem taka mið af lífeðlisfræði kvenna og reynslu. 

Curtis lagði sérstaka áherslu á að gera vísindin aðgengileg og hagnýt fyrir almenning. Hann sýndi hvernig einfalda má flókin viðfangsefni þar á meðal útreikninga á orku- og næringarþörf og vísaði á væntanlega vefsíðu verkefnisins. Þar er hægt að nálgast má áreiðanlegar upplýsingar, leiðbeiningar og annað efni sem styður við upplýstar ákvarðanir um næringu og heilsu.

Málstofan var send út í beinu streymi. Einnig er hægt að horfa á hana hér.

Horfa á málstofu