Hvetja stjórnvöld til að tryggja stuðning við svæðisstöðvar
Sambandsráðsfundur UMFÍ hvetur stjórnvöld til að tryggja áframhaldandi stuðning við uppbyggingu svæðisbundinnar stoðþjónustu við íþrótta- og ungmennastarf um land allt. Þjónustan, sem byggð hefur verið upp í samstarfi ÍSÍ og UMFÍ, er í dag fjármögnuð bæði af stjórnvöldum og ÍSÍ og UMFÍ.
Sambandsráðsfundurinn var haldinn á Ísafirði á laugardag og var hann sá fjölmennasti í sögu ungmennafélagshreyfingarinnar. Ástæðan er sú að hreyfingin hefur stækkað mikið síðastliðin sjö ár eða síðan fyrstu íþróttabandalög landsins fengu aðild að UMFÍ árið 2019. Íþróttabandalag Vestmannaeyja (ÍBV) bættist við í raðir UMFÍ í fyrravor og voru við það öll íþróttahéruð landsins og þar með öll íþróttafélögin innan UMFÍ.
Mikil samstaða var á fundinum. Í ályktun hans segir að mikilvægt sé að tryggja að öll íþróttahéruð og öll íþrótta- og ungmennafélög sem undir þeim starfa hafi aðgang að ráðgjöf, stuðningi og þróunarvinnu – óháð stærð eða staðsetningu.
Í hnotskurn fjallar ályktunin um það að öll börn eigi að fá tækifæri til að taka þátt í íþrótta- og ungmennastarfi – óháð því hvar þau búa, hvaðan þau koma, hvort þau eru með fötlun eða hver efnahagur fjölskyldunnar er. Þess vegna þurfi öll íþróttahéruð og félög, stór sem smá, um allt land að hafa aðgang að ráðgjöf, stuðningi og þróunarvinnu. Það tryggi svæðisstöðvar íþróttahéraða, sem ÍSÍ og UMFÍ hafa byggt upp í sameiningu og stjórnvöld fjármagna með þeim. Til að sá árangur haldist og vaxi hvetur UMFÍ stjórnvöld til að halda stuðningnum áfram.
Að mati fundarins hefur uppbygging svæðisstöðva íþróttahéraða undanfarin ár skapað betri forsendur fyrir samstarf og þekkingarmiðlun en nokkru sinni fyrr og gert þeim betur kleift að styðja við þau verkefni sem mest þörf er á hverju sinni.
Í ályktuninni er bent sérstaklega á framlag svæðanna til verkefna sem tengjast þátttöku og farsæld barna og ungmenna á hverjum stað, þar á meðal verkefna sem miða að aukinni þátttöku barna með fötlun, barna af erlendum uppruna og barna frá tekjulægri heimilum. Slík verkefni séu samfélagslega mikilvæg og falli að áherslum stjórnvalda um jöfn tækifæri og aukna þátttöku allra barna í skipulögðu starfi.
Með áframhaldandi stuðningi stjórnvalda sé unnt að treysta þjónustu við íþróttahéruð og félög um allt land og byggja áfram á þeim árangri sem þegar hefur náðst.
Undir ályktunina rita stjórn UMFÍ og formenn íþróttahéraða.
Undirritaðir
Stjórn UMFÍ:
- Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ.
- Skúli Bragi Geirdal, varaformaður UMFÍ.
- Margrét Sif Hafsteinsdóttir, gjaldkeri stjórnar UMFÍ.
- Sigurður Óskar Jónsson, ritari UMFÍ.
- Helgi Sigurður Haraldsson, formaður framkvæmdastjórnar og meðstjórnandi UMFÍ.
- Guðný Stefanía Stefánsdóttir, fulltrúi framkvæmdastjórnar og meðstjórnandi UMFÍ.
- Halla Margrét Jónsdóttir, fulltrúi framkvæmdastjórnar og meðstjórnandi UMFÍ.
- Birgir Már Bragason, varastjórn UMFÍ.
- Gunnar Þór Gestsson, varastjórn UMFÍ.
- Ragnheiður Högnadóttir, varastjórn UMFÍ.
- Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson, varastjórn UMFÍ.
Fulltrúar íþróttahéraða
Austurland:
- Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA): Benedikt Jónsson, formaður.
- Ungmennasambandið Úlfljótur (USÚ): Bjarni Malmquist formaður.
Höfuðborgarsvæðið
- Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH): Stefán Þór Borgþórsson, fulltrúi ÍBH á fundinum.
- Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR): Ingvar Sverrisson formaður.
- Ungmennasamband Kjalarnesþings (UMSK): Guðmundur G. Sigurbergsson formaður.
Norðurland eystra
- Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ): Ísak Már Aðalsteinsson framkvæmdastjóri.
- Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA): Jóna Jónsdóttir formaður.
- Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar (UÍF): Óskar Þórðarson formaður.
- Ungmennasamband Eyjafjarðar (UMSE): Þorgerður Guðmundsdóttir formaður.
Norðurland vestra
- Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS): Gunnar Þór Gestsson formaður.
- Ungmennasamband Austur-Húnvetninga (USAH): Auðunn Steinn Sigurðarson, formaður.
- Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga (USVH): Halldór Sigfússon, varaformaður.
Suðurland
- Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK): Guðríður Aadnegard formaður.
- Íþróttabandalag Vestmannaeyja (ÍBV): Gunnar Páll Hálfdánsson formaður.
- Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu (USVS): Jóhann Páll Elínarson formaður.
Suðurnes
- Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB): Rúnar V. Arnarson formaður.
- Íþróttabandalag Suðurnesja (ÍS): Kjartan Friðrik Adolfsson, fulltrúi stjórnar.
Vestfirðir
- Héraðssambandið Hrafna-Flóki (HHF): Birna Hannesdóttir formaður.
- Héraðssamband Bolungarvíkur (HSB): Trausti Salvar Kristjánsson, fulltrúi stjórnar.
- Héraðssamband Strandamanna (HSS): Sigríður Drífa Þórólfsdóttir, fulltrúi stjórnar.
- Héraðssamband Vestfirðinga (HSV): Sigríður Gísladóttir, formaður.
Vesturland
- Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu (HSH): Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson formaður.
- Íþróttabandalag Akraness (ÍA): Gyða Björk Bergþórsdóttir formaður.
- Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN): Jóhanna Sigrún Árnadóttir formaður.
- Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB): Guðrún Þórðardóttir sambandsstjóri.