Hvetja íþróttafélög til að sýna forvarnarmyndbönd gegn nikótíni
Forvarnardagurinn var haldinn í gær, 1. október. Hann minnir okkur á að forvarnir skipta máli og að það er hægt að hafa áhrif. Samkvæmt lýðheilsuvísum Embættis landlæknis, sem komu út í september 2026, nota 12,3% framhaldsskólanema á landinu nikótínpúða daglega. Það er um einn af hverjum átta.
„Íþróttahreyfingin nær til ungs fólks á hverjum degi, um allt land. Þar höfum við tækifæri sem við eigum að nýta,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Taktu stjórnina!
Myndböndin eru fjögur og bera yfirskriftina Taktu stjórnina! Þau eru samstarfsverkefni UMFÍ, Fræðslu & forvarna og Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins og byggjast á fræðsluefni dr. Láru G. Sigurðardóttur læknis. Verkefnið hlaut styrk úr Lýðheilsusjóði.
Í myndböndunum er fjallað á einfaldan og myndrænan hátt um hvernig nikótínfíkn myndast, áhrif nikótíns á heilann, svefn, líkamann og tannhold, og ávinninginn af því að sleppa nikótíni.
Hvernig er hægt að nota myndböndin?
Myndböndin eru stutt og með texta og njóta sín því bæði með og án hljóðs. Þau eru til í lóðréttu og láréttu sniði og henta vel:
- á skjám í anddyri eða við afgreiðslu íþróttahúsa og sundlauga.
- á viðburðum, mótum og fundum íþrótta- og ungmennafélaga.
- á samfélagsmiðlum félaga.
- sem kveikja að samtali á æfingum eða í kennslustundum.
Á heimasíðu UMFÍ eru einnig umræðuspurningar með hverju myndbandi, sem þjálfarar og kennarar geta notað.
Sækja myndböndin: https://myndir.umfi.is/s/o/xucqhfr8MJ6sbWfQ
Umræðuspurningar og nánari upplýsingar: https://www.umfi.is/verkefni/reyklaust-tobak/
Viltu hætta?
Á heilsuvera.is finnur þú upplýsingar og stuðning við að hætta að nota nikótín, og þar getur þú haft samband við heilsugæsluna þína.