Fara á efnissvæði
06. nóvember 2026

Hvatasjóður úthlutar 26 milljónum króna

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar úthlutaði í dag 26 milljónum króna til 57 verkefna um allt land. Sjóðurinn styrkir verkefni sem auka þátttöku barna og ungmenna, sérstaklega barna með fötlun, barna af tekjulægri heimilum og barna af fjölmenningarlegum uppruna. 

Sjóðurinn tók til starfa í lok árs 2024 og hafa alla jafna verið veittir styrkir úr honum þrisvar sinnum á ári.

Þetta er önnur úthlutun ársins úr sjóðnum.

Allar helstu upplýsingar um sjóðinn er að finna á upplýsingasvæði hans á vefsvæði Svæðisfulltrúa íþróttahreyfingarinnar.

 

Hér má sjá úthlutun eftir verkefnum

Styrkirnir skiptast með þessum hætti

Skipt eftir verkefnum:

  • Tengd börnum af erlendum uppruna: 8 samþykktar.
  • Tengd börnum með fötlun: 18 samþykktar.
  • Tengd börnum af tekjulægri heimilum: 11 samþykktar.
  • Þvert á áhersluflokka verkefna: 20 samþykktar.

 

Skipt eftir landshlutum:

  • Höfuðborgarsvæðið: 19 samþykktar: 8,4 m. kr.
  • Suðurnes: 3 samþykktar: 1,4 m. kr.
  • Vesturland: 8 samþykktar: 2,95 m. kr.a
  • Vestfirðir: 3 samþykktar: 1,15 m. kr.
  • Norðurland vestra: 5 samþykktar: 2,6 m. kr.
  • Norðurland eystra: 6 samþykktar: 2,25 m. kr.
  • Austurland: 4 samþykktar: 2,2 m. kr.
  • Suðurland: 7 samþykktar: 2,05 m. kr.
  • Landsverkefni (Allir með): 2 samþykktar:     3,0 m. kr.

 

Upplýsingar um Hvatsjóð íþróttahreyfingarinnar