Fara á efnissvæði
04. nóvember 2026

Hjálpumst að við að deila gleðinni

Ný herferð Allir með var frumsýnd á dögunum. Herferðin samanstendur af sjónvarpsauglýsingum, myndböndum og öðru efni fyrir sjónvarp, útvarp og stafræna miðla. Vitundarvakningin náði hámarki um helgina þegar Allir með-leikarnir fóru fram í Laugardalshöll um helgina.

Þar fengu börn og ungmenni með fötlun tækifæri til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar og kynnast því starfi sem stendur þeim til boða. Leikarnir voru mjög fjölmennir.

En hvernig er hægt að taka þátt í vitundarvakningunni?

  • Það er æðislegt ef þið hafið tök á að deila efni Allir með-herferðarinnar á samfélagsmiðlum og öðrum miðlum félagsins.
  • Segið iðkendum, foreldrum og öðrum í nærumhverfinu frá verkefninu og þeim tækifærum sem standa til boða fyrir börn og ungmenni með fötlun.
  • Gott er að hafa augun opin fyrir því hvað þið getið gert í ykkar félagi til að skapa fleiri tækifæri fyrir börn með fötlun til þátttöku.
  • Kynnt ykkur verkfæri, upplýsingar og fræðsluefni á allirmed.is.

Brjótum ísinn, prófum okkur áfram og finnum hvað virkar fyrir íþróttafélög, þjálfara, foreldra og iðkendur – við erum öll hluti af liðinu.

Allir með er samstarfsverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) og Íþróttasambands fatlaðra (ÍF), með stuðningi þriggja ráðuneyta.

Hægt er að smella á myndina hér að neðan og farið á vefsvæði allirmed.is.