Fara á efnissvæði
25. ágúst 2026

Fulltrúar Reykjanesbæjar í heimsókn hjá UMFÍ

Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, tók á móti gestunum. „Umræðurnar voru afar skemmtilegar og upp komu alls kyns vangaveltur," segir Auður Inga. „Við þökkum þeim kærlega fyrir góða heimsókn og skemmtilegar spurningar og vangaveltur."


Í hópnum voru Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Gunnlaugur Kárason, fulltrúi í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, Hafþór Barði Birgisson og Guðlaugur Sigurjónsson, starfsmenn Reykjanesbæjar, Guðni Erlendsson, framkvæmdastjóri ÍRB, Rúnar V. Arnarsson, formaður ÍRB, og Birgir Már Bragason og Hámundur Örn Helgason úr stjórn ÍRB.