Fengu Hvatningarverðlaun fyrir fjölbreytt verkefni
Fern verkefni íþrótta- og ungmennafélaga hlutu Hvatningarverðlaun UMFÍ á 46. Sambandsráðsfundi UMFÍ sem fram fór á Ísafirði um helgina. Verkefnin voru átak gegn nikótínpúðum, samstarfi félaga sem blés nýju lífi í sunddeild félags, sameining íþróttafélags fatlaðra við ungmennafélag til að opna börnum með áskoranir betri aðgang að íþróttaiðkun og verkefni sem tengir saman íþróttastarf, skóla og frístundir barna á aldrinum 4-8 ára.
Fulltrúar íþróttahéraða tóku við viðurkenningunum úr hendi Jóhanns Steinars Ingimundarsonar, formanns UMFÍ, og Auðar Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ.
Eitt verkefnanna var samstarfsverkefni tveggja íþróttahéraða, Íþróttabandalags Akraness (ÍA) og Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB). Verðlaunin eru veitt fyrir samstarf og sameiginlegar lausnir Sundfélags Akraness og Sunddeildar Ungmennafélagsins Skallagríms í Borgarnesi, sem miða að því að endurvekja sunddeild Skallagríms með þjálfurum sem koma frá Akranesi. Þær Guðrún Hildur Þórðardóttir, sambandsstjóri UMSB, og Gyða Björg Bergþórsdóttir, formaður ÍA, tóku saman við verðlaunum.
Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) hlaut Hvatningarverðlaunin fyrir víðtækt átak Knattspyrnufélags Reykjavíkur (KR) fyrir áherslur í félagsmálum og forvörnum félagsins, meðal annars með auknum sýnileika sjálfboðaliða og verkefni gegn nikótíni innan félagsins. Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR tók við verðlaununum.
Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) hlaut Hvatningarverðlaunin fyrir verkefni Ungmennafélags Selfoss og Íþróttafélagsins Suðra en verðlaunin voru veitt fyrir sameiningu íþróttafélagsins Suðra og Ungmennafélags Selfoss til að efla starf fyrir iðkendur með fötlun. Guðríður Aadnegard tók við Hvatningarverðlaunum fyrir hönd HSK. Hún þakkaði Rakel Magnúsdóttur og bauð henni upp að taka á móti viðurkenningunni með sér en hún kom að vinnu við sameininguna og var á svæðinu.
Að lokum hlaut Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ) Hvatningarverðlaun UMFÍ fyrir samþættingarverkefni Íþróttafélagsins Völsungs á Húsavík sem tengir saman íþróttastarf, skóla og frístundir barna á aldrinum 4–8 ára. Framkvæmdastjórinn Ísak Már Aðalsteinsson tók við verðlaununum en kallaði til sín Jónas Halldór Friðriksson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Völsungs, sem var á fundinum í öðru hlutverki.