06. ágúst 2023
Engin þrumuskot í blindrabolta
![](/media/yfhlcbq3/5o6a4786.jpg?width=400&height=400&v=1d9c85e70ea61f0 1x)
„Hér verða engin þrumuskot!‟ sagði íþróttakempan og kennarinn Karl Lúðvíksson, sem stýrði blindrabolta á Unglingalandsmóti UMFÍ í dag. Í blindrabolta er bundið fyrir augu þátttakenda og fylgja aðstoðarmenn hverjum þeirra og leiðbeina. Boltinn er með bjöllu sem heyrist í og þurfa leikmenn því að hlusta vel eftir boltanum ætli þeir að skora.
Mótsgestir þurftu ekki að skrá sig sérstaklega í greinina heldur gátu þau mótt á svæðið og tekið þátt.
Karl leiðbeindi vasklega liðsmönnum beggja liða og áminnti þá sem létu of mikið í sér heyra eða veittu keppendum of mikla hjálp til að skora í afar hressilegum og skemmtilegum leik.
![](/media/1qscti1y/5o6a4821.jpg?width=524&height=524&v=1d9c85e72c5ffc0 1x)
![](/media/kl4hw5iv/5o6a4787.jpg?width=524&height=524&v=1d9c85e71075fd0 1x)
![](/media/0tbnfpux/5o6a4767.jpg?width=524&height=524&v=1d9c85e71a48a30 1x)
![](/media/sbdbbdwt/5o6a4800.jpg?width=524&height=524&v=1d9c85e71237350 1x)