Fara á efnissvæði
02. júlí 2026

Einar Björn er nýr framkvæmdastjóri UDN

Einar Björn Þorgrímsson tók í gær til starfa sem framkvæmdastjóri Ungmennasambands Dalamanna- og Norður-Breiðfirðinga (UDN). Starfssvæði UDN er á Vesturlandi og nær frá Dalasýslu og til Austur-Barðastrandasýslu. 

Einar Björn er með Bs. - gráðu í íþrótta- og heilsufræði á kjörsviði kennara frá Háskóla Íslands 2023 og er hann nú í meistaranámi í Forystu- og mannauðsstjórnun við Háskólann á Bifröst. Einar Björn hefur dágóða reynslu af viðburðastjórnun, rekstri, styrkjaumsóknum, samskiptum og skiplulagningu ýmis konar, að því er segir í frétt af málinu á vef UDN.

Starfshlutfall Einars Björns er 20%. 

Á vefsvæði UDN segir að þar á bæ hlakki fólk til samstarfsins með Einari Birni.

Hér að ofan má sjá mynd af stjórn UDN með Einari Birni. Á myndinni má sjá frá vinstri: Guðbjört Lóa, Einar Björn, Jóhanna Sigrún, formaður UDN, Sunneva Hlín, Ragnheiður HElga og Alexander Örn. 

Á myndinni hér að neðan má sjá Einar Björn árið 2012 þegar hann tók þátt á Unglingalandsmóti UMFÍ þegar það fór fram á Selfossi. Nú verður mótið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina.