Dagur gegn einelti: Allir eiga að fá að vera með
Í dag, 8. nóvember, er dagur gegn einelti. Dagurinn hefur verið haldinn árlega hér á landi frá árinu 2011. Markmið hans er að vekja athygli á einelti og minna okkur öll á að við berum sameiginlega ábyrgð á því að skapa umhverfi þar sem öllum líður vel.
Í íþrótta- og ungmennafélögum um allt land koma börn og ungmenni saman á hverjum degi. Þar eignast þau vini, læra að vinna saman og finna að þau tilheyra hópi. Til þess að svo verði þarf hver og einn að finna að hann sé velkominn. Þar skipta þjálfarar, sjálfboðaliðar, foreldrar og iðkendur sjálfir öllu máli.
UMFÍ hvetur félög, þjálfara og alla sem starfa með börnum og ungmennum til að nota daginn til að ræða saman um samskipti og vináttu. Hvernig tökum við á móti nýjum iðkendum? Tökum við eftir þeim sem standa utan hópsins? Vitum við hvernig á að bregðast við ef einhverjum líður illa?
Einelti á sér líka stað á netinu
Einelti takmarkast ekki við æfingasvæðið eða búningsklefann. Það getur líka átt sér stað í spjallhópum, á samfélagsmiðlum og í tölvuleikjum, oft án þess að fullorðnir verði þess varir. Æskulýðsvettvangurinn hefur tekið saman fræðsluefni um neteinelti. Þar er fjallað um birtingarmyndir þess og afleiðingar og hvaða vísbendingar geta bent til þess að barn verði fyrir neteinelti. Þar eru einnig ráð fyrir þolendur, gerendur, áhorfendur og foreldra, og fyrir þjálfara og aðra sem starfa með börnum og ungmennum.
Verkfæri ef erfið mál koma upp
Það skiptir máli að vita hvernig á að bregðast við þegar einelti eða önnur erfið mál koma upp. Til þess er viðbragðsáætlun íþrótta- og æskulýðsstarfs. Hún leiðbeinir starfsfólki, sjálfboðaliðum og öðrum um hvernig best er að bregðast við einelti, ofbeldi, slysum og öðru sem getur komið upp á. Áætlunin var unnin í samráði við UMFÍ, ÍSÍ, ÍBR, Bandalag íslenskra skáta, KFUM og KFUK, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og Æskulýðsvettvanginn. Markmiðið er að viðbrögð séu samræmd, enda er það best fyrir alla sem eiga hlut að máli.
Við hvetjum öll félög til að kynna sér viðbragðsáætlunina og hafa hana aðgengilega fyrir þjálfara og sjálfboðaliða.
Viðbragðsáætlunina má nálgast hér
Einelti er aldrei í lagi. Saman getum við tryggt að allir fái að vera með.