Fara á efnissvæði
24. september 2026

Blómstruðu og tengdust á Ungu fólki og lýðheilsu

„Ég fór langt út úr þægindarammanum sem gerði mig opnari til að kynnast nýju fólki," sagði einn af þátttakendum á ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa, sem fram fór á Reykjum í Hrútafirði um síðustu helgi. Ráðstefnan er fyrir ungt fólk á aldrinum 15 til 25 ára. Uppselt var á hana töluvert áður en helgin rann upp og voru vel yfir 100 manns á henni þegar mest lét.  

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár var Blómstrum. Styrkjumst. Tengjumst, og var helgin sannkölluð veisla í anda þessara orða.

Ráðstefnan fór fram í húsnæði Skólabúða UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði. Þátttakendur mættu á föstudeginum, komu sér fyrir og tengdust. Daginn eftir hófst ráðstefnan af fullum krafti. Þeir Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís, og Ólafur Stefánsson, fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, fluttu þar afar upplýsandi og hvetjandi erindi um athygli, símanotkun og sálfræðilegan sveigjanleika. Í kjölfarið var þátttakendum skipt niður á vinnusmiðjur, þar sem leitað var svara við spurningum á borð við: Hver á þína athygli? 

Þátttakendum var jafnframt skipt í heimahópa, þar sem fyrirliðar úr Ungmennaráði UMFÍ leiddu létta stigakeppni sem endaði með uppskeruhátíð á sunnudagsmorgni.

 

Vinsælt kaffihúsaspjall

Á lokadegi ráðstefnunnar fór svo fram hið vinsæla kaffihúsaspjall, þar sem þátttakendur ræddu á jafningjagrundvelli við þingmenn, sveitarstjórnarfólk og annað áhrifafólk úr samfélaginu. Formið minnti á hraðstefnumót. Gestirnir sátu kyrrir við borð á meðan ungmennin færðu sig á milli þeirra og fengu þannig tækifæri til að ræða við marga ólíka einstaklinga á stuttum tíma.

Að ráðstefnu lokinni voru þátttakendur beðnir um að svara stuttri könnun. Viðtökurnar voru afar jákvæðar. 98% sögðust myndu mæla með ráðstefnunni við aðra og 93% fannst dagskráin í heild góð eða mjög góð. Þátttakendur voru ófeimnir við að deila upplifun sinni. Tilvitnun hér að ofan er einmitt úr einu svaranna.

Aðrir þátttakendur sögðu: „Frábær ráðstefna – hún sker svo sannarlega fram úr öðrum miðað við hversu skemmtileg hún var!"

„Frábær hugmynd og tækifæri sem gefst alls ekki oft, að fá að tala við þingmenn og annað fólk – alls ekki eitthvað sem má sleppa."

Ráðstefnan hefur farið árlega fram frá árinu 2009 þar sem Ungmennaráð UMFÍ sér alfarið um undirbúning og framkvæmd. Ungmennaráð UMFÍ þakkar öllum þátttakendum, fyrirlesurum og gestum kærlega fyrir frábæra helgi og hlakkar nú þegar til að taka á móti nýjum og gömlum þátttakendum að ári. 

Ráðstefnan er styrkt af Erasmus+.

 

Svipmyndir frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa 2026