Björguðu Landsmótsplötu Skriðjökla
„Við vorum að taka til í plötuskáp fjölskyldunnar heima á Kúfhól þegar við rákumst á þessa plötu. Við vorum næstum búin að henda henni þegar ég rak augun í að hún tengdist Landsmótinu á Húsavík árið 1987,“ segir Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, annar tveggja svæðisfulltrúa íþróttahéraðanna á Suðurlandi.
Bryndís segir margar plötur hafa horfið annað úr plötusafni fjölskyldunnar.
Öðru máli gegni um þessa fínu Skriðjöklaplötu sem hún kom með í þjónustumiðstöð UMFÍ og færði Auði Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmastjóra UMFÍ, að gjöf.
Platan, sem inniheldur tvö lög með Skriðjöklunum, er nú á góðum stað með ýmsum gersemum úr sögu UMFÍ, þar á meðal er fótbolti með áritun þeirra sem kepptu í knattspyrnu á Landsmótinu á Laugarvatni árið 1965. Á meðal þeirra sem kepptu og skrifuðu nafn sig í Landsmótssöguna var enginn annar en Rúnar Júlíusson, sem síðar varð þekktur sem tónlistarmaður.
Hægt er að smella á myndina hér neðst í umfjölluninni og bæði sjá og heyra lagið.
Á Landsmót!
Skriðjöklar voru ein vinsælasta hljómsveit landsins á síðari hluta níunda áratugarins. Sveitin sló í gegn svo um munaði með gamansömum popplögum, vann hljómsveitakeppni í Atlavík árið 1985 og varð eftir það fastagestur á dansleikjum og í útvarpi. Helsti höfundur sveitarinnar var Bjarni Hafþór Helgason, þá sjónvarpsstjóri á Akureyri, sem samdi bæði lög og texta.
Vorið 1987 birtust fréttir um að Skriðjöklar myndu taka upp tvö lög eftir Bjarna Hafþór í hljóðveri Samvers og að þau kæmu út á plötu tengdri Landsmóti UMFÍ, sem halda skyldi á Húsavík um sumarið.
Lögin heita Á landsmót og Mamma tekur slátur.
Í DV 24. júní árið 1987 er greint frá útgáfunni og þar birtist mynd af Bjarna Hafþóri með plötuna ásamt Guðna Halldórssyni, framkvæmdastjóra landsmótsins. Markmiðið var skýrt: platan átti að vekja athygli á mótinu og fá fólk til að koma.
„Þetta er að plata fólk á landsmót“, eins og blaðamaður DV orðaði það. Platan kom út um sumarið í 2.000 eintökum og var seld í gegnum ungmennafélögin en fór ekki í almenna sölu.
Þrátt fyrir þetta komst lagið Á landsmót ofarlega á vinsældalista Rásar 2 og Bylgjunnar og varð þekktasta landsmótslag hreyfingarinnar.
Landsmenn sungu UMFÍ-lög
Landsmótið sjálft var 19. Landsmót UMFÍ og fór fram á Húsavík 10.–12. júlí 1987. Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ, setti mótið á föstudagskvöldi og meðal gesta við setninguna voru Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands, og Birgir Ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra.
Fyrir mótið var reiknað með tíu þúsund gestum en á laugardeginum var talið að 14–16 þúsund manns væru í bænum þegar flest var. Veðrið var eins og best var á kosið alla keppnisdagana.
Keppt var til stiga í frjálsum íþróttum, sundi, glímu, knattspyrnu, handknattleik, körfuknattleik, blaki, borðtennis, skák og starfsíþróttum, og til viðbótar voru sýningargreinar á borð við siglingar, karate, fimleika, dans, íþróttir fatlaðra, kraftlyftingar, bridds, golf, fjárhundasýningu og afmælishlaup UMFÍ, sem tengdist 80 ára sögu sambandsins. HSK sigraði með yfirburðum í stigakeppni félaganna með 478,50 stig, næst kom UMSK með 260 stig og UMFN með 190. Hápunktur mótsins var Norðurlandamet Einars Vilhjálmssonar í spjótkasti, 82,96 metrar, sem hann setti á laugardeginum að viðstöddu miklu fjölmenni, og fjöldi landsmótsmeta féll að auki.
Skriðjöklar héldu áfram næstu árin, gáfu út plötuna *Búmm tsjagga búmm* árið 1993 og komu síðan fram með löngum hléum, meðal annars árið 1995, 1999 og allt fram til 2012.
Plata Skriðjöklanna er ein af mörgum lögum sem samin voru og nýtt í markaðssetningu landsmótanna á á níunda áratugnum. Það var gert með dægurlagi sem talið var að landsmenn gætu lært og sungið.
Heimildir:
Glatkistan (Skriðjöklar); DV 24.06.1987 bls. 28; Dagur 14.07.1987; (Landsmót UMFÍ á Húsavík '87); Vormenn Íslands.