Fara á efnissvæði
23. september 2026

Ánægð með stefnu UMFÍ um gervigreind

„Það kemur fyrir að fólk notar persónulegan aðgang sinn á gervigreindarforrit og annan hugbúnað í vinnunni og öfugt, stofni aðganga með vinnunetfanginu í sínu persónulega lífi. Það á ekki að gera og getur verið mikið öryggisatriði að skilja á milli persónulegra aðganga og vinnu. Það er ein ástæða þess að við settum stefnu um notkun gervigreinar hjá UMFÍ þar sem skilin og vinnulagið eru gerð skýr,“ segir Halla Margrét Jónsdóttir, formaður upplýsingatækninefndar og stjórnarkona UMFÍ. 

Gervigreindartól og margvísleg notkun þeirra hafa verið talsvert í fréttum upp á síðkastið. Halla Margrét, sem er með meistaragráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Danmörku og sérfræðingur í netöryggi, segir mikilvægt að fyrirtæki og félög setji sér ramma og stefnu um notkun gervigreinar – og reyndar alls konar hugbúnaðar. 

 

Gervigreind er ekki staðgengill

Gervigreind er vandasamt tól, að sögn Höllu Margrétar, verkfæri sem eigi að létta fólki við vinnu sína en sé ekki staðgengill. 

„Í öllum störfum er mikilvægt að fólk geri greinarmun á starfi og einkalífi. Í samræmi við það á fólk aðeins að nota vinnuaðganga að hugbúnaði í störfum sínum en persónulega aðganga í öllu sem ekki tengist vinnunni,“ segir hún og bætir við að slíkur aðskilnaður aðganga eigi ekki aðeins við um gervigreind heldur allan hugbúnað og forrit sem fólk noti í störfum sínum. 

Þetta, segir hún, er öryggisatriði enda geti það hleypt hættunni heim að nota persónulega aðgang að hugbúnaði í vinnu og nýta vinnugögn í persónulegum tilgangi. 

„Þessi skörun kemur í ljós í notkun á samfélagsmiðlum og hugbúnaði því margt fólk notar netföng sín í vinnu sem notendanafn á samfélagsmiðlum. Það á ekki að gera, því vinna og einkalíf á ekki að skarast. Það er tímabært að samþykkja þetta nú þegar gervigreind er að vaxa ásmegin því það getur opnað óprúttnu fólki dyr inn í tölvukerfi og gögn fyrirtækja í gegnum öryggisglufur,“ segir Halla Margrét og viðurkennir að hún sé glöð að gervigreindarstefnan hafi verið samþykkt. 

 

Stefna UMFÍ um gervigrein í hnotskurn
  • Gervigreind á að vera tæki til að létta vinnu, auka skilvirkni, aðstoða við hugmyndavinnu og hvetja til nýsköpunar, en aldrei á kostnað mannlegra samskipta, öryggis eða persónuverndar. 
  • Gervigreind kemur aldrei í staðinn fyrir persónuleg tengsl og það starf sem fram fer innan UMFÍ. Tæknin er stuðningstæki, ekki staðgengill. 
  • Fólk sé opið með það hvenær og hvernig gervigreind er notuð, sérstaklega ef hún er notuð við gerð efnis eða ákvarðanatöku.  
  • Fyllsta öryggis er gætt og persónuverndarlögum fylgt (GDPR). Gögn um börn, ungmenni og sjálfboðaliða eru aldrei sett í opin gervigreindarkerfi. 
  • Starfsfólk og sjálfboðaliðar bera alltaf ábyrgð á því efni og þeim niðurstöðum sem gervigreind hjálpar til við að skapa. Aldrei má treysta gervigreind í blindni. Notendur gervigreindartóla skulu ávallt vera ábyrgir við notkun þess og hafa gagnrýna hugsun.
  • Starfsfólk UMFÍ er hvatt til að nota gervigreind á ábyrgan hátt, til dæmis við aðstoð við eftirfarandi atriði: 1) Hugmyndavinna og skipulag: Fá hugmyndir að viðburðum, verkefnum, dagskrám eða fyrirsögnum. 2) Umsýsla og skrifstofustörf: Leiðrétta texta, þýða efni, taka saman fundargerðir (án viðkvæmra persónuupplýsinga) eða semja drög að tölvupóstum. 3) Aðstoð við gerð kynningarefnis fyrir vefsíðuna (umfi.is) og samfélagsmiðla, svo lengi sem efnið sé yfirfarið og sannreynt af mönnum. 4) Gagnaúrvinnsla: Hægt er að fá aðstoð frá gervigreind við að vinna úr gögnum og getur það bæði sparað tíma og hjálpað við úrvinnslu.
  • Þegar gervigreindartól eru nýtt í þágu UMFÍ eða við gerð efnis á vegum félagsins skal ávallt nota aðgang út frá netföngum sem félagið á.
  • Óheimilt er að nota persónuleg netföng eða einkareikninga til að vinna með gögn eða efni hreyfingarinnar.
  • Óheimilt er að setja nöfn, kennitölur, netföng, ljósmyndir eða aðrar persónugreinanlegar upplýsingar um iðkendur, sjálfboðaliða eða starfsfólk inn í opin gervigreindartæki. Ef undantekningu er krafist þarf að sækja um það, málið áhættumetið og verða gerðar viðeigandi öryggisráðstafanir til að vera viss um að gögnin fari ekki út af vél UMFÍ.
  • Staðreyndavillur og „gervigreindar-ofskynjanir“ (e. hallucinations): Gervigreind getur búið til rangar upplýsingar. 
  • Óheimilt er að birta efni á miðlum UMFÍ án þess að manneskja hafi lesið það yfir og staðfest að upplýsingarnar séu réttar. Notandi gervigreindarinnar er alltaf ábyrgur fyrir því efni sem hann birtir og þar með að staðreyndir séu réttar. Gervigreind skal ávallt vera notuð með varkárni og gagnrýnni hugsun. 
  • Þegar gervigreind er notuð til að búa til myndir skal tryggja að þær sýni fjölbreytileika og endurspegli gildi UMFÍ. Ef mynd er gerð með hjálp gervigreindar og gæti villt um fyrir fólki, skal merkja hana sérstaklega (t.d. „Mynd: Gervigreind/UMFÍ eða nafni notanda“).