Fara á efnissvæði
16. september 2026

Algjör veisla á ungmennaráðstefnu UMFÍ

„Þetta verður algjör veisla. Ég hlakka ótrúlega mikið til af því að það er pakkað og við erum að fá þátttakendur af öllu landinu, marga sem eru að koma í fyrsta sinn,“ segir Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson, varaformaður Ungmennaráðs UMFÍ. 

Ráðið heldur ungmennaráðstefnuna Ungt fólk og lýðheilsa í húsnæði Skólabúða UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði um helgina. Þátttakendur eru rúmlega 80 talsins á aldrinum 15–25 ára. Uppselt er á ráðstefnuna fyrir nokkru síðan. Ráðstefnan hefst síðdegis á föstudag og líkur henni eftir hádegi á sunnudag. 

Yfirskrift ráðstefnunnar er: Blómstrum, styrkjumst og tengjumst og vísar til þess hvernig ungt fólk getur unnið að því að efla, styrkja andlega, líkamlega og félagslega heilsu sína í heimi sem stjórnast af hraða og endalausu áreiti og skjánotkun, sem hefur sífellt meiri áhrif á daglegt líf. 

Á ráðstefnunni verða fyrirlestrar, vinnusmiðjur og óformlegt samtal við þingmenn, sveitastjórnarfólk, íþróttafólk, stjórnendur í félagasamtökum og ýmsa fleiri. 

Ernir Daði kom á sína fyrstu ungmennaráðstefnu fyrir þremur árum, þá 16 ára. Hann hafði þá nýverið tekið sæti í ungmennaráði UMFÍ.

„Ég tók ekki mikið þátt í fyrstu ráðstefnunni. En svo eru þessar ráðstefnu svo skemmtilegar og búa yfir töfrum. Ég óx ég á ráðstefnunni og fór að taka meira að mér. Það gerist hjá fleirum. Ég hef séð ungmenni koma í rútuna sem fer á Reyki og tala við fáa. Á heimleiðinni hafa þau eignast fullt af vinum og eru orðin rosalega opin og virk,“ segir hann. 

 

Ungt fólk ræðir málin

Ungmennaráðstefnan hefur verið haldin frá árinu 2009 og hefur markmið hennar frá upphafi snúist um að ræða um lýðræði og samfélagsmál sem brenna á ungu fólki í samtímanum. Ungmennaráð UMFÍ hefur skipulagt allar ráðstefnurnar. 

Föstudagurinn er nýttur til tengslamyndunar og setningar ráðstefnunnar.

Á laugardag hefst ráðstefnan af alvöru. Á síðasta ári var kastljósinu beint að lýðheilsu og kostum þess að taka þátt í félagsstarfi. Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, fjallaði þar um félagslega töfra, tengls fólks í samfélaginu og mikilvægi beinna samskipta í stað þess að eiga ætíð samskipti í gegnum skjámiðla, sem eru takmarkaðri og ýta undir alls konar firringu, skautun í samfélaginu og einmanaleika. Hann stýrði líka vinnustofum í félagi við ungmennaráðið. 

 

Hver stelur athygli þinni?

Að þessu sinni munu þeir Ólafur Stefánsson og Skúli Bragi Geirdal, flytja tvö erindi. 

Vart þarf að kynna þá. Ólafur er fyrrverandi fyrirliði landsliðs Íslands í handknattleik og meistaranemi í sálfræði. Hann hefur síðustu ár einbeitt sér að núvitund, hugarfari og persónulegum styrk. Hann fjallar um fólk sem samhengi. 

Fjölmiðlafræðingurinn Skúli Bragi Geirdal er sviðsstjóri hjá Netvís og sérfræðingur í stafrænu umhverfi ungs fólks, samfélagsmiðlum og netöryggi. Hann er jafnframt varaformaður UMFÍ. Skúli mun mun fjalla um það sem stelur athygli fólks. 

Að því loknu verður þátttakendum skipt upp í vinnusmiðjur sem tengjast spurningunni: Hver á þína athygli? 

Markmið ráðstefnunnar er að styrkja ungt fólk til að hafa áhrif á eigið líf og sitt nærsamfélag. Þátttakendur öðlast aukið sjálfstraust, læra að koma skoðunum sínum á framfæri og mynda tengsl sem geta haft áhrif til framtíðar.

 

Deila skoðunum og hlusta á aðra

Fyrir hádegi á sunnudag fá þátttakendur á ungmennaráðstefnunni tækifæri til að ræða við þingmenn, sveitastjórnarfólk og fleiri um ýmis mál er varða ungt fólk. Þetta hafa verið líflegar umræður þar sem allir fá tækifæri til að viðra skoðanir sínar en líka hlusta og læra af öðrum. 

Þau sem þegar hafa boðað komu sína í kaffihúsaspjallið eru: 

  • Bergþór Ólafson, þingmaður Miðflokksins.
  • Embla Líf Halldórsdóttir, formaður ungra athafnakvenna.
  • Eydís Arnbjörnsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. 
  • Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknar.
  • Ingibjörg Ásta Bjarnadóttir, formaður ungmennaráðs Rauða krossins á Íslandi og stjórnarkona.
  • Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ.
  • Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
  • Kolbrún Ósk Pétursdóttir, verkefnastýra Æskulýðsvettvangsins.
  • María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
  • Patrekur Jóhannesson, afreksmaður í handbolta, þjálfari og starfsmaður Afreksmiðstöðvar ÍSÍ.
  • Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalistafloksins í Reykjavík.
  • Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar.
  • Silja Úlfarsdóttir, íþróttapönkari og umboðsmaður íþróttafólks. 

 

Styrktaraðili ráðstefnunnar er Erasmus+.

 

Hér að neðan má sjá svipmyndir frá ráðstefnunni í fyrra.