Lög Ungmennafélags Íslands
I. KAFLI: NAFN, FÁNI OG KJÖRORÐ
1. grein
Landssamband ungmennafélaga á Íslandi heitir Ungmennafélag Íslands, skammstafað UMFÍ. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. grein
Fáni UMFÍ er Hvítbláinn. Kjörorð UMFÍ er: Íslandi allt. Hvítbláinn skal vera í merki UMFÍ, að öðru leyti ákveður sambandsþing UMFÍ gerð þess. Merki UMFÍ er eign UMFÍ og verndað vörumerki.
II. KAFLI: HLUTVERK UMFÍ
3. grein
Hlutverk UMFÍ er ræktun lýðs og lands. Hlutverki sínu hyggst UMFÍ ná með því að: Vinna eftir samþykktri stefnu UMFÍ sem skal vera staðfest á sambandsþingi, með áherslu á arfleifð UMFÍ sem grundvallast í eftirfarandi setningum:
- Gefa sem flestum kost á að taka þátt í heilbrigðu félagsstarfi.
- Standa fyrir iðkun íþrótta og stuðla að heilbrigðum lífsháttum og hollri hreyfingu.
- Starfa í anda friðar og jafnréttis.
- Vinna að aukinni fræðslu og forvörnum gegn neyslu á skaðlegum efnum.
- Vinna að landgræðslu, skógrækt og umhverfisvernd.
- Stuðla að jafnvægi í byggð landsins og auka fræðslu almennings til að auðvelda hverjum og einum að taka afstöðu til þjóðnytjamála og vinna að framgangi þeirra.
- Glæða með þjóðinni tryggð og rækt við heimili sín, átthaga og ættjörð.
III. KAFLI: RÉTTINDI OG SKYLDUR
4. grein
Sambandsaðilar UMFÍ eru íþróttahéruð og Ungmennafélagið Vesturhlíð. Aðildarfélög UMFÍ eru þau félög sem eru í íþróttahéruðum.
5. grein
Inntökubeiðni í UMFÍ skal fylgja eintak af lögum umsækjanda sem skulu vera í fullu samræmi við sambandslög þessi. Sambandsþing úrskurðar um inntöku. Sambandsþing hefur rétt til að víkja sambandsaðilum úr UMFÍ, með samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða.
6. grein
Vilji sambandsaðili ganga úr UMFÍ telst úrsögn því aðeins lögmæt, að samþykkt hafi verið á löglegu héraðsþingi eða aðalfundi tillaga þess efnis. Skal sú úrsögn lögð fyrir næsta Sambandsþing UMFÍ og taka gildi frá þeim degi sem sambandsaðili samþykkti úrsögn. Aðili sem gengið hefur úr eða verið vikið úr UMFÍ getur ekki krafist endurgreiðslu á fé sem hann hefur lagt til sambandsins eða nokkurs hluta af eignum UMFÍ.
7. grein
Hver sambandsaðili innan UMFÍ greiðir árgjald í sambandssjóð af hverjum skattskyldum félaga eftir ákvörðun sambandsþings og skilar því fyrir lok aprílmánaðar ár hvert.
Skattskyldur félagi telst vera sá einstaklingur sem skráður er í félagatal og nær 16 ára aldri á almanaksárinu. Sambandsaðilar semja skýrslu um störf sín og hag við hver áramót og senda rafrænt í þar til gert félagaskýrslukerfi UMFÍ fyrir 15. apríl ár hvert eða eftir atvikum innan annars tilgreinds frests sem stjórn UMFÍ hefur staðfest.
8. grein
Sérhver félagi aðildarfélags innan UMFÍ hefur málfrelsi og tillögurétt hvar sem er á fundum innan hreyfingarinnar.
IV. KAFLI: STJÓRNUN UMFÍ
9. grein
Sambandsþing UMFÍ er æðsta vald í málefnum UMFÍ. Stjórn skal boða skriflega til Sambandsþings með a.m.k. 6 vikna fyrirvara og skal það haldið fyrir 15. nóvember annað hvert ár.
Skriflegt fundarboð (síðara fundarboð) með dagskrá, ársreikningi og upplýsingum um tillögur og mál sem leggja á fyrir Sambandsþing skal senda sambandsaðilum með eigi minna en tveggja vikna fyrirvara. Sambandsaðilar skulu skila inn kjörbréfum fyrir upphaf þings.
Sambandsaðilar kjósa fulltrúa til Sambandsþings miðað við fjölda skattskyldra félaga skv. félagatali í félagaskýrslukerfi UMFÍ, sem skal skila í síðasta lagi innan tilgreinds tímafrests það ár sem þing er haldið, sem hér segir:
- 1 fulltrúa fyrir 1 - 200 skattskylda félaga.
- 2 fulltrúa fyrir 201 - 1999 skattskylda félaga.
- 3 fulltrúar fyrir 2000 - 2999 skattskylda félaga.
- 4 fulltrúar fyrir 3000 - 3999 skattskylda félaga.
- 5 fulltrúar fyrir 4000 - 4999 skattskylda félaga.
- 6 fulltrúar fyrir 5000 - 5999 skattskylda félaga.
- 7 fulltrúar fyrir 6000 - 6999 skattskylda félaga.
- 8 fulltrúar fyrir 7000 - 7999 skattskylda félaga.
- 9 fulltrúar fyrir 8000 - 8999 skattskylda félaga.
- 10 fulltrúar fyrir 9000 og fleiri skattskylda félaga.
Þingfulltrúar geta að hámarki verið 10 fulltrúar. Til viðbótar því sem að framan greinir skulu formenn íþróttahéraða eða staðgenglar vera sjálfkjörnir.
Sameining íþróttahéraða skal ekki leiða til þess að þau fái færri þingfulltrúa á næsta Sambandsþingi en þau höfðu samanlagt á síðasta Sambandsþingi.
Sambandsþing er lögmætt ef löglega er til þess boðað og mættur er fullur helmingur réttkjörinna fulltrúa.
Verkefni Sambandsþings skulu m.a. vera:
- Ræða skýrslur liðins kjörtímabils
- Afgreiða reikninga næstliðins reikningsárs, (almanaksárið), sem skulu áritaðir af löggiltum endurskoðanda
- Marka stefnu UMFÍ á komandi árum
- Afgreiða tillögur
- Staðfesta stefnu UMFÍ hverju sinni
- Lagabreytingar
- Kjósa stjórn
- Kjósa kjörnefnd
- Afgreiða fjárhagsáætlun næsta árs
- Velja endurskoðunarfélag fyrir UMFÍ
Aukaþing skal boða innan tveggja vikna ef 2/3 sambandsaðila óska þess með skriflegum hætti og skal halda þingið eigi síðar en tveimur vikum frá boðun. Einnig getur stjórn boðað til aukaþings. Fulltrúafjöldi á aukaþingi skal vera sá sami og á síðasta lögmæta þingi.
10. grein
Sambandsráð UMFÍ er æðsta vald í málefnum UMFÍ á milli Sambandsþinga. Sambandsráð er skipað formönnum sambandsaðila UMFÍ eða varamönnum þeirra, ásamt stjórn UMFÍ eða varamönnum hennar.
Stjórn skal boða skriflega til sambandsráðsfundar með a.m.k. 4 vikna fyrirvara og skal hann haldinn fyrir 15. nóvember það ár sem sambandsþing UMFÍ er ekki haldið.
Verkefni sambandsráðsfundar skulu vera:
- Ræða skýrslur næstliðins árs.
- Afgreiða reikninga liðins árs, sem skulu áritaðir af löggiltum endurskoðanda.
Greiði einhver fulltrúi á sambandsráðsfundi atkvæði gegn því að reikningar séu samþykktir, þá skulu þeir lagðir fyrir næsta Sambandsþing til afgreiðslu.
- Afgreiða fjárhagsáætlun næsta árs.
- Ræða viðfangsefni UMFÍ milli þinga.
11. grein
Stjórn UMFÍ skal skipuð sjö einstaklingum: Formanni, ritara, gjaldkera, varaformanni og þremur meðstjórnendum sem kosnir eru til fjögurra ára. Kosning stjórnar skal vera skrifleg eða rafræn.
Formaður skal kosinn sérstaklega, á öðru hvoru Sambandsþingi. Til að formaður hljóti kosningu þarf frambjóðandi að hljóta meirihluta greiddra atkvæða nema hann sé einn í framboði en þá telst hann sjálfkjörinn. Ef slík niðurstaða fæst ekki í fyrstu umferð er kosið aftur milli þeirra tveggja frambjóðenda sem flest atkvæði fengu í fyrri umferð.
Kjósa skal aðra stjórnarmenn í einu lagi og skal kjósa þrjá á hverju Sambandsþingi. Til að atkvæðaseðill til stjórnarkjörs sé gildur verður að kjósa þrjá einstaklinga sem gefið hafa kost á sér til stjórnarkjörs.
Varastjórn skipa fjórir einstaklingar og skulu tveir kosnir á hverju Sambandsþingi til fjögurra ára. Til að atkvæðaseðill til varastjórnarkjörs sé gildur verður að kjósa tvo einstakling sem gefið hefur kost á sér til varastjórnarkjörs. Draga skal á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar um röð varamanna.
Sambandsþing UMFÍ skal kjósa fimm einstaklinga í kjörnefnd sem starfar til loka næsta Sambandsþings, og tvo til vara.
Tilkynning um framboð til stjórnar og varastjórnar UMFÍ skal berast skriflega til kjörnefndar eigi síðar en 10 dögum fyrir þing. Einstaklingur sem býður sig fram til formanns getur jafnframt boðið sig fram til stjórnar og/eða varastjórnar á þinginu kjósi hann svo. Sama á við um einstakling sem býður sig fram til stjórnar og getur hann þá á þinginu boðið sig fram til varastjórnar.
Við stjórnarkjör skal leitast við að í kjöri séu fulltrúar frá hverju kjördæmi. Ef þessu markmiði hefur ekki verið náð, eftir að framboðsfrestur rennur út, er kjörnefnd heimilt að framlengja framboðs-frestinn um allt að 5 daga og skal sú ákvörðun tilkynnt sambandsaðilum. Heimilt er að bera fram tillögu um fleiri en einn úr hverju kjördæmi.
Kjörgengir til stjórnar og varastjórnar eru allir skattskyldir félagar.
Þeir sem kjörnir eru í stjórn eða varastjórn, skulu hvorki vera í launuðu starfi hjá UMFÍ eða sambandsaðilum, né sitja í stjórnum þeirra.
Stjórn kýs úr sínum hópi til eins árs í senn þrjá einstaklinga og einn til vara er skipa framkvæmdastjórn. Hlutverk framkvæmdastjórnar eru að fylgja eftir samþykktum stjórnar og afgreiða mál á milli stjórnarfunda.
Stjórn UMFÍ skal á hverju kjörtímabili halda a.m.k. einn stjórnarfund í hverjum landsfjórðungi.
Verkefni stjórnar skulu vera:
• Stýra málefnum UMFÍ milli þinga.
• Gefa út álit á þeim ágreiningsmálum sem skotið er til hennar.
• Varðveita sjóði UMFÍ og leggja fram endurskoðaða reikninga til þings og sambandsráðsfundar
• Birta árlega skýrslu um gerðir, hag og horfur UMFÍ.
12. grein
Einfaldur meirihluti greiddra atkvæða ræður úrslitum mála á sambandsþingi, sambandsráðsfundi og stjórnarfundi, nema um lagabreytingu sé að ræða eða breytingu á reglugerð um skiptingu lottótekna sbr 16. grein.
V. KAFLI: LANDSMÓT OG UNGLINGALANDSMÓT
13. grein
Stjórn UMFÍ skal ákveða hvenær Unglingalandsmót, Landsmót 50+ eða önnur landsmót skulu haldin og samþykkja reglugerðir fyrir mótin.
Stjórn UMFÍ skal með hæfilegum fyrirvara auglýsa innan hreyfingarinnar eftir sambandsaðilum sem áhuga hafa á að taka að sér að halda Landsmót UMFÍ 50+ og Unglingalandsmót UMFÍ.
Stjórn UMFÍ skal ákveða hvaða aðili skuli halda mótið. Stjórn UMFÍ skal eiga rétt á að tilnefna fulltrúa sinn í undirbúningsnefndir mótanna.
Meðal annars skal gæta eftirtalinna atriða við allan undirbúning og framkvæmd mótanna:
- Þau endurspegli eftir föngum umfang og fjölbreytileika í starfsemi ungmenna-félagshreyfingarinnar.
- Aðstaða til íþrótta sé eins góð og kostur er.
- Almenningi sé gefinn kostur á þátttöku.
- Þau séu vímulaus.
- Þau séu ætluð fjölskyldufólki og fólki á öllum aldri.
- Að vegalengdir milli keppnisstaða séu innan hæfilegra marka.
VI. KAFLI: HEIÐURSVIÐURKENNINGAR
14. grein
Sambandsþing getur kjörið heiðursfélaga UMFÍ þá einstaklinga er unnið hafa ungmennafélagshreyfingunni óvenjumikið gagn eða þingið vill veita sérstaka sæmd fyrir ágæt störf í anda UMFÍ. Heiðursfélagar hafa öll réttindi ungmennafélaga en eru sjálfráðir um skyldur. Heiðursviðurkenningar má og veita samkvæmt sérstakri reglugerð.
VII. KAFLI: SLIT UNGMENNAFÉLAGS ÍSLANDS
15. grein
Til þess að slíta Ungmennafélagi Íslands eða sameina það öðrum samtökum þarf samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða á lögmætu sambandsþingi. Slík tillaga þarf einnig að hljóta samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða á sérstöku aukaþingi sem stjórn UMFÍ skal boða til innan 6 mánaða.
Á aukaþinginu skulu sambandsaðilar eiga rétt á sama fjölda þingfulltrúa eins og á sambandsþinginu en að öðru leyti skulu ákvæði laga þessa um sambandsþing gilda um aukaþingið. Ef samþykkt verður skv. 1. mgr. að slíta UMFÍ skal aukaþingið ákveða hvert fjárhagslegar og ófjárhagslegar eignir og réttindi UMFÍ skulu renna.
VIII. KAFLI: LAGABREYTINGAR OG GILDISTAKA
16. grein
Lögum þessum og reglugerð um skiptingu lottótekna má aðeins breyta á lögmætu Sambandsþingi og þarf til þess 2/3 hluta greiddra atkvæða. Hjáseta telst ekki greitt atkvæði. Tillögur til lagabreytinga/reglugerðabreytinga skal senda stjórn UMFÍ minnst 4 vikum fyrir sambandsþing og skal stjórn UMFÍ senda tillögurnar sambandsaðilum til kynningar minnst 2 vikum fyrir þing. Til að taka til afgreiðslu tillögur sem ekki hafa hlotið kynningu skv. 2. mgr. þarf samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða, nema um sé að ræða tillögu til breytinga á áður kynntri tillögu til breytinga á lögum eða reglugerð.
17. grein
Bráðabirgðaákvæði með lögum.
Haustið 2027 verður formaður kjörinn til fjögurra ára. Jafnframt verða 6 meðstjórnendur kosnir, þrír til tveggja ára og þrír til fjögurra ára. Varamenn verða kosnir með sama hætti.
Samþykkt á 54. Sambandsþingi UMFÍ 2025 í Stykkishólmi. Lögin taka gildi að þingi loknu.