Fara á efnissvæði
27. júní 2023

Öflugir sjálfboðaliðar gerðu mótið gott

„Svona mót er ekki haldið nema með öflugum sjálfboðaliðum sem skiluðu sínu mjög vel. Fjöldi þátttakenda var yfirmeðallagi í ár eða um 350 manns,“  segir Gunnhildur Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Héraðssambands Snæfellsness- og Hnappadalssýslu (HSH) um Landsmót UMFÍ 50+ sem haldið var í Stykkishólmi dagana 23.-25. júní.

Að sögn Gunnhildar gekk framkvæmd mótsins og undirbúningur þess frábærlega. 

Rætt er við Gunnhildi á vefsíðu Stykkishólms.

Danskir dagar voru haldnir samhliða Landsmótinu og því margt um að vera í Hólminum alla helgina. 

 

Veðurspá Magnúsar gekk eftir

Magnús Bæringsson, tómstunda- og æskulýðsfulltrúi Stykkishólms, hafði spáð blíðu í Stykkishólmi landsmótshelgina. Veðurstofan var hins vegar á öðru máli og gerði ráð fyrir skúrum og frekar leiðinlegu veðri. Magnús reyndist sannspárri því sólin lét sig ekki vanta. Brakandi blíða var allan föstudaginn og langt fram eftir laugardegi.

Þar sem mikið álag var á tjaldsvæði bæjarins var kærkomið að fá hitaskúr í lok laugadags og sunnudagsmorguns til að vökva gras og annan gróður á svæðinu og kæla mótsgesti í petanque og pútti.

Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar vinna nú að taka niður skraut og ganga frá eftir viðburðaríka helgi.

Gunnhildur vill koma þakklætiskveðju til styrktaraðila, sjálfboðaliða og annarra sem komu að mótinu með einum eða öðrum hætti. Jafnframt segir hún sveitarfélagið eiga hrós skilið fyrir sitt framlag.

 

Á myndinni hér að ofan má sjá þau Magnús og Gunnhildi stilla sér upp á meðan keppni í stígvélakasti stóð fyrir. Það var síðasta grein mótsins. 

Hér að neðan má sjá fleiri myndir frá mótinu.