Fara á efnissvæði

Styrkir

Lottó til sambandsaðila

Íslensk getspá og Getraunir

UMFÍ kemur að rekstri tveggja fyrirtækja sem starfa á íslenskum markaði.

Sögu Íslenskra getrauna má rekja allt aftur til ársins 1952. Á fyrstu getraunaseðlunum voru mestmegnis leikir í danskri og sænskri knattspyrnu en eftir því sem árin liðu varð enska knattspyrnan mest áberandi. 

Íslenskar getraunir starfa samkvæmt lögum nr. 59/1972 frá Alþingi og veita þau Getraunum einkaleyfi á rekstri íþróttagetrauna á Íslandi. Með því að merkja númer tiltekins íþrótta- eða ungmennafélags á getraunaseðli er viðkomandi félag styrkt.

Saga Íslenskrar getspár hófst árið 1986. Árið 1999 var gerður þjónustusamningur milli Íslenskra getrauna og Íslenskrar getspár um að Íslensk getspá sjái um rekstur Íslenskra getrauna og er sá þjónustusamningur enn í gildi. 

Hagnaður af rekstri Íslenskrar getspár er greiddur út til eigenda fyrirtækisins, sem svo greiða hann áfram til sinna sambandsaðila eftir sérstökum reglugerðum sem íþróttahreyfingin setur sér. 

Eigendur Getspár eru þrír

47%

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands á 46,67% hlut.

40%

Öryrkjabandalag Íslands á 40% hlut.

13%

Ungmennafélag Íslands á 13,33% hlut.

Starfskýrslukerfi

Starfsskýrslukerfi UMFÍ og ÍSÍ er nýtt til grundvallar greiðslum frá Íslenskri getspá. 

UMFÍ og ÍSÍ hvetja félög til að endurskoða félagaskrár sínar og yfirfara vel allar upplýsingar í starfsskýrslukerfinu. Það er alltaf á ábyrgð hvers félags að yfirfara félagatal sitt áður en það er lesið inn og staðfesta réttan fjölda við skil. 

Afar áríðandi er að ofangreindar upplýsingar skili sér til þess aðila innan hvers félags sem annast á starfsskýrsluskilin.

Hvað er í þessum skýrslum?

  • Starfsskýrsluskil þurfa að innihalda upplýsingar um iðkendur  og félagsmenn á síðasta starfsskýrslutímabili, þ.e. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember ár hvert.
  • Innslegnar lykilupplýsingar úr ársreikningum fyrir síðasta starfsár.
  • Upplýsingar um stjórn og starfsfólk.
  • Skila skoðuðum ársreikningi og núgildandi lögum í pdf. formi.

Skilafrestur er til 15. apríl ár hvert.

OPNA STARFSSKÝRSLUKERFI
(web)

Lottóreglur og úthlutun UMFÍ

Smelltu hér til þess að lesa reglurgerð um lottó og útlutun til sambandsaðila UMFÍ.

Skoða reglugerð