Fara á efnissvæði
12. ágúst 2023

Geggjað gaman í Drulluhlaupi

„Þetta var geggjað gaman!“ hrópaði Íris María upp yfir sig þegar hún kom úr Drulluhlaupi Krónunnar og UMFÍ sem fram fór í brakandi blíðu við íþróttamiðstöðina við Varmá í Mosfellsbæ í dag. Hún og faðir hennar var á meðal 800 þátttakenda í hlaupinu sem stóð frá klukkan 10 í morgun til klukkan 14. 
 
Þetta er annað skiptið sem Drulluhlaup Krónunnar er haldið en að því standa Krónan, UMFÍ og Ungmennafélagið Afturelding. Þegar hlaupið fór fram í fyrsta sinn í fyrra tóku um 400 manns þátt í hlaupinu.  
 
Leiðin í Drulluhlaupinu er 3,5 kílómetra löng með meira en 20 hindrunum sem þátttakendur hjálpuðust að við að komast yfir. Mikill hluti þátttakenda voru fjölskyldur  sem skemmtu sér saman við að spretta úr spori og voru börnin á ýmsum aldri.  
 
Sérstakt drullusvæði var búið til fyrir yngstu börnin og nutu þess enn fleiri við að maka sig út í drullu. Hægt var að skola af sér á sérstöku svæði og fengu allir þátttakendur auk þess ókeypis í sund í Varmárlaug svo enginn færi heim skítugur upp fyrir haus í fjölskyldubílnum. 
 
Fólk var oftast nær klætt íþróttafötum í hlaupinu. Björn Ómarsson var hins vegar í sínu fínasta sparitaui og bindi sömuleiðis. Hann var með þeim fyrstu sem sprettu úr spori í þessu káta hlaupi. 
 
„Það er mjög gaman hvað allir voru glaðir,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ, en hann er hér með Valdimari Gunnarssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK) og Krónuhjólastjóranum Halldóru Helgadóttur auk þátttakenda.