Sími: 843 0925
Netfang: skuli.geirdal@umfi.is
Skúli Bragi er fjölmiðlafræðingur að mennt. Ásamt því hefur hann stundað nám við grafíska hönnun í Myndlistarskólanum á Akureyri. Í dag starfar hann sem sviðsstjóri Netvís - Netöryggismiðstöðvar Íslands. Hann stofnaði og heldur úti Tengslaneti um upplýsinga- og miðlalæsi á Íslandi auk þess sem hann leiðir vinnuhóp forseta Íslands sem ber vinnuheitið „Símafriður.“
Skúli er reyndur fyrirlesari með fjölbreyttan bakgrunn m.a. í fjölmiðlum, knattspyrnuþjálfun og félagsstarfi ungmenna.
- Hann situr í tengiliðahópi á vegum þjóðaröryggisráðs um rýni á mögulegri miðlun erlendra ríkja eða aðila þeim tengdum á „fölskum fréttum“, áróðri, lygum og undirróðri hér á landi sem miðar að því að grafa undan samfélagslegu trausti og lýðræðislegum gildum.
- Situr í starfshópi menntamálaráðherra um mótun reglna um viðeigandi og örugga farsímanotkun í grunnskólum.
- Nordic MIL Survey - Expert Group - fyrir hönd Íslands. Hópurinn vinnur að sameiginlegri rannsókn á miðlalæsi á Norðurlöndum.
- Samráðshópur um vernd einstaklinga í aðdraganda kosninga.
- Skjánotkun barna – leiðbeiningar Heilsuveru - höfundur.
- Kynningarstjóri Sambands ungra Framsóknarmanna.