Sími:
Netfang: margret.hafsteinsdottir@umfi.is
Margrét er lögfræðingur og íþróttakennari að mennt, með Cand.jur próf frá HÍ og meistarapróf í lögum og lögmannsréttindi. Að auki hefur hún lokið Bs. námi í viðskiptafræði.
Margrét hefur verið virk í íþróttastarfi frá unga aldri, fyrst sem almennur iðkandi í hinum ýmsu íþróttagreinum en þó lengst af í handbolta, bæði með Þrótti og KR. Síðan tóku við mörg ár í þjálfun hjá Þrótti, Val og KR. Sumarið á milli námsára í ÍKÍ réð hún sig, sem íþróttastjóra á Raufarhöfn hjá Ungmennafélaginu Austra. Eftir að hún lauk þjálfun tóku við hin ýmsu félagsstörf. Hún byrjaði sem stjórnamaður í Barna-og unglingaráði og síðar tók hún sæti í stjórn knattspyrnudeildar KR og um leið sem formaður meistaraflokksráðs kvenna.
Eftir að hún hætti í stjórn knd. KR, bauð hún sig fram í stjórn ÍBR og hefur setið þar síðastliðin ár. Að auki hefur hún setið í ýmsum nefndum og ráðum innan íþróttahreyfingarinnar og er núna í laga – og reglunefnd KSÍ.