Fara á efnissvæði

Birgir Már Bragason

Sími: 
Netfang: birgir.bragason@umfi.is
 

Birgir á langan og fjölbreyttan feril innan íþróttahreyfingarinnar. Hann hefur verið virkur í starfi Ungmennafélags Keflavíkur/Keflavík íþrótta- og ungmennafélags um árabil, þar sem hann hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri félagsins. Birgir er menntaður málari og hefur jafnframt setið í stjórnum körfuknattleiks- og knattspyrnudeildar félagsins, auk þess að vera í Aðalstjórn Keflavíkur frá árinu 1997. Starfið hefur verið fjölbreytt – allt frá því að vera lukkudýr félagsins til þess að gegna embætti formanns deildar og varaformanns Aðalstjórnar. Þá hefur Birgir síðastliðin sex ár átt sæti í íþrótta- og tómstundaráði Reykjanesbæjar.